Fréttir

24. ágúst 20010

Starfsmaður óskast

Auglýst er eftir starfmanni í hlutastarf til afleysinga á þjónustuskrifstofu Þekkingarseturs Vestmannaeyja. Um er að ræða 40% stöðu frá september 2010 til loka febrúar 2011. Vinnutími er æskilegur frá 15:00 til 18:00, en um það má semja.

Lesa meira...

Eldri Fréttir

24. ágúst 2010

Skattaafsláttur til nýsköpunarfyrirtækja

Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki, skattfrádráttur vegna þróunarstarfs og skattafsláttur vegna fjárfestinga.
Í lok árs 2009 voru samþykkt lög á Alþingi um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki ("nr. 152/2009"). Lögin kveða á um að fyrirtæki geti fengið skattfrádrátt vegna kostnaðar við rannsóknir og þróunarstarf og að fjárfestar fái skattafslátt vegna fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum. Til að skattyfirvöld veiti slíka ívilnun er gerð krafa um að Rannís veiti staðfestingu á að um nýsköpunarfyrirtæki sé að ræða í samræmi við ákvæði laganna. Gildir afgreiðslan fyrir yfirstandandi almanaksár.
 
Sjá nánar
 
 

Lesa meira...


1.júlí 2010

Ársfundur Þekkingarseturs Vestmannaeyja

Þann 5. júlí n.k. kl. 11:00 verður haldinn ársfundur Þekkingarseturs Vestmannaeyja. Fundurinn verður haldinn í Þekkingarsetrinu að Strandvegi 50, þriðju hæð.

Lesa meira...