Hafrannsóknastofnunin
Útibú Hafrannsóknastofnunarinnar í Vestmannaeyjum hóf starfsemi 1. október 1986. Fyrstu átta árin hafði útibúið aðsetur í Vinnslustöðinni h/f en í október 1994 fluttist starfsemin í húsnæði Rannsóknasetursins í Vestmannaeyjum að Strandvegi 50. Útibúið er á þriðju hæð hússins. Útibúið er tengiliður Hafrannsóknastofnunarinnar við sjávarútveginn í Vestmannaeyjum. Gagnasöfnun úr lönduðum afla er stór þáttur í starfseminni, einnig annast útibúið ýmsa upplýsingaöflun varðandi veiðar við Suðurströndina.
Frá útibúinu hafa verið stundaðar ýmsar rannsóknir á svæðum kringum Vestmannaeyjar og við Suðurströndina auk smærri verkefna t.d. vegna fiskmerkinga, blaðgrænumælinga með sjálfvirkum búnaði í Herjólfi auk söfnunar þangs og kræklings vegna mengunarmælinga.
Útibúið hefur yfir að ráða rannsóknabát sem keyptur var í árslok 1993. Báturinn heitir Friðrik Jesson VE 177 og hefur hann verið notaður í ýmis verkefni við Eyjar undanfarin ár.
Starfsmenn í vestmannaeyjum eru tveir:
Valur Bogason, útibússtjóri, sími: 8616481, netfang: valur@hafro.is
Leifur Gunnarsson, rannsóknarmaður, sími: 5752321, netfang: leifur@eyjar.is
Leifur Gunnarsson, rannsóknarmaður, sími: 5752321, netfang: leifur@eyjar.is
![]() |
Valur Bogason
útibússtjóri sími: 8616481 netfang: valur@hafro.is |



