Háskóli Íslands
Við Háskóla Íslands er lagt stund á flestar vísinda- og fræðigreinar í sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf á Íslandi. Við Háskóla Íslands eru vel menntaðir og þjálfaðir kennarar og vísindamenn, löng rannsóknahefð og mikið samstarf við erlenda háskóla og aðrar rannsóknastofnanir. Útibú Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum hefur það markmið að skapa vettvang fyrir starfsemi skólans í Vestmannaeyjum. Sérstök áhersla er lögð á rannsóknir og rannsóknatengt nám í náttúruvísindum og greinum sem tengjast atvinnulífinu í Vestmannaeyjum.
Útibú Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum hóf störf 14. október 1994 um leið og rannsóknastofnanir Eyjanna voru sameinaðar undir eitt þak.
Netfang: rol@hi.is


