Vinnumálastofnun

Vinnumálastofnun opnaði þjónustuskrifstofu í Vestmannaeyjum í maí 2001 í húsnæði Rannsókna- og fræðaseturs Vestmannaeyja að Strandvegi 50. Þjónustuskrifstofan er útstöð Vinnumálastofnunar á Suðurlandi en höfuðstöðvar þess eru á Selfossi. Tveir starfmenn starfa hjá Vinnumálastofnun í Vestmannaeyjum, annars vegar þjónustufulltrúi og hins vegar náms- og starfsráðgjafi.
Meginhlutverk þjónustuskrifstofa Svæðisvinnumiðlunar er að bjóða fjölþætta þjónustu til atvinnuleitenda sem og atvinnurekenda. Öll þjónusta er endurgjaldslaus og felst m.a. í upplýsingagjöf um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur ásamt því að ráðgjafar veita upplýsingar og ráðgjöf um náms- og starfsval og hvernig atvinnuleit sé best háttað.
Netfang: svm.sudurlands@svm.is