Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
| Megin hlutverk Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er í ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila sem þurfa á ráðgjöf að halda. Félagið veitir einnig styrki í eigin nafni til áhugaverðra verkefna og hefur milligöngu um umsóknir á styrkjum annarra en Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, einnig hafa starfsmenn félagsins tekið að sér verkefnastjórn í stórum og smáum verkefnum fyrir hina ýmsu aðila. | ![]() |
Með tilkomu útibús í Þekkingarsetri Vestmannaeyja (Setrinu), hefur Atvinnuþróunarfélag Suðurlands stækkað tengslanet sitt til muna.
Rekstrarframlög félagsins koma frá 4 megin stoðum.
Rekstrarframlög félagsins koma frá 4 megin stoðum.
1. Sveitarfélögum á Suðurlandi
2. Byggðastofnun
3. Fjármagnstekjum af lánum
4. Seldri þjónusta
2. Byggðastofnun
3. Fjármagnstekjum af lánum
4. Seldri þjónusta
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands leggur áherslu á að ráða til sín vel menntað og hæft starfsfólk. Menntun starfsfólks samanstendur af MBA, M.Sc, B.Sc, BA og Phil.cand prófum. Undirfög þeirra menntunar eru: Viðskiptastjórnun, Viðskiptafræði, Rekstrarfræði, Alþjóðaþróunarfræði , Stjórnmálafræði, Vörustjórnun, Skipstjórn, Listasögu, Markaðsfræðum og Alþjóðasamskiptum.
Starfsmenn félagsins eru þrír
Hrafn Sævaldsson. Ráðgjafi og verkefnastjóri. Vestmannaeyjum. hrafn@sudur.is
Sædís Íva Elíasdóttir . Framkvæmdastjóri. Vík og á Selfossi. iva@sudur.is
Steingerður Hreinsdóttir. Ráðgjafi og verkefnastjóri. Selfossi. steingerdur@sudur.is
Félag tengt Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands er, Eignarhaldsfélag Suðurlands. Það félag kaupir hlutafé í áhugaverðum félögum á Suðurlandi. Framkvæmdaraðili Eignarhaldsfélags Suðurlands er Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Nánari upplýsingar um Eignarhaldsfélag Suðurlands: Almenn kynning á félaginu, fjárfestingarstefna, skilyrði fyrir hlutafjárkaupum, upplýsingar fyrir umsækjendur, fjárfestingar EFS og hvaða hlutabréf eru til sölu eru á heimasíðu félagsins www.efs.is
Frekari upplýsingar um Atvinnuþróunarfélagið, starfsemi þess og ýmsar aðrar hagnýtar upplýsingar eru á heimasíðu Atvinnuþróunarfélags Suðurlands: www.sudur.is
Símar starfsmanns í Vestmannaeyjum eru : 4812961 & 8612961
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands er framkvæmdaraðili Vaxtarsamnings Suðurlands og Vestmannaeyja. Heimasíða samningsins er á slóðinni www.vssv.is
![]() |
Hrafn Sævaldsson
Starfsmaður í Vestmannaeyjum |




