Styrkir frá Veiðikortasjóði

Frá: 16.01.2009.16:00

Til:  16.01.2009.16:00

Samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum úthlutar umhverfisráðherra fé úr Veiðikortasjóði til rannsókna.
Ráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum til rannsókna á stofnum villtra dýra sem undir áðurnefnd lög falla og heimilt er að veiða. Umsóknir skulu berast ráðuneytinu fyrir 16. janúar 2009. Ráðuneytið mun að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar úthluta styrkjum úr sjóðnum í byrjun febrúar 2009.