„Á næsta fyrirlestri Forvitinna frumkvöðla þann 6.maí munum við fara yfir viðskiptaáætlun á mannamáli. Farið verður yfir gerð viðskiptaáætlana og ræðum við um hvað skiptir máli og hvernig viðskiptaáætlun getur sagt sögu verkefnisins. Fyrirlesturinn hentar bæði þeim sem eru að stíga sin fyrstu skref og þeim sem vilja skerpa framsetningu sína. Farið verður yfir hvernig hægt er að nýta sér hin ýmsu tæki og tól til að hjálpa sér við að koma sér af stað.
Magnús Barðdal hefur mikla þekkingu úr fjármálageiranum ásamt því að hann hefur sjálfur staðið í rekstri þar sem gerð viðskiptaáætlana hefur skipt máli því mun hann leiða okkur í allan sannleikann um hvernig góð viðskiptaáætlun verður til.“
https://www.facebook.com/events/1027998185768225/1027998192434891/?active_tab=about