Nú styttist í að Belugahvalirnir Litla Hvít og Litla Grá verði fyrstu íbúar SEA LIFE TRUST Griðastaðar í Klettsvíkinni í Vestmannaeyjum. Þetta er fyrsti náttúrulegi griðastaðurinn í heiminum fyrir hvali sem Merlin Entertainments er að setja upp hér í Eyjum. Þegar forsvarsmenn verkefnisins komu til Vestmannaeyja í haust komu fréttamenn frá BBC með þeim.
![Belugahvalir](https://www.setur.is/wp-content/uploads/2018/11/Belugahvalir-e1541772825347.jpg)