Siðareglur Þekkingarseturs Vestmannaeyja
- Gildissvið
Siðareglur þessar gilda um alla starfsmenn og stjórnarmenn Þekkingarseturs Vestmannaeyja ses, sem við
ráðningu til starfa eða kosningu til trúnaðarstarfa undirgangast reglur þær sem hér fara
á eftir.
- Almennt
Við skuldbindum okkur til að hlíta þeim lögum sem ÞSV starfar eftir og þeim
vinnureglum sem framkvæmdastjóri og stjórn setja á hverjum tíma.
Við sýnum samstarfsfólki og viðskiptavinum ÞSV ávallt virðingu og þjónustulund. Framkoma okkar á að endurspegla alúð og virðingu fyrir þeirri þjónustu sem
Þekkingarsetrið veitir.
Við sýnum hvert öðru gagnkvæma virðingu og komum í veg fyrir að hjá ÞSV
viðgangist óréttlæti, svo sem einelti, kynferðisleg áreitni eða mismunun byggð á kynferði,
aldri, trú eða kynhneigð.
Við leggjum áherslu á heilindi, hlutlægni, gagnrýna hugsun, fagleg vinnubrögð og
málefnalegan rökstuðning í starfi okkar fyrir Þekkingasetrið.
Við munum gæta varkárni í umfjöllun okkar um ÞSV á opinberum vettvangi og
ekki viðhafa nein ummæli er varpað geta rýrð á ímynd og starfsemi Þekkingarsetursins.
Þegar og ef viðkvæm málefni koma upp á opinberum vettvangi, er kunna að varða
trúverðugleika ÞSV og/eða einstaka starfs – eða stjórnarmenn þess skulu framkvæmdastjóri og eftir atvikum stjórnarformaður ÞSV vera talsmenn út á við.
- Trúnaður
Við erum, svo sem lög kveða á um, bundin þagnarskyldu um hvað eina sem við verðum
áskynja í starfi og snertir alla samstarfsaðila og hagsmunaaðila, sem og um trúnaðarmál
Þekkingarsetursins, og helst sú skylda þrátt fyrir starfslok.
Við nýtum ekki trúnaðarupplýsingar og/eða þekkingu sem við höfum aflað í starfi okkar
hjá ÞSV, til ávinnings fyrir okkur sjálf eða aðra.
Við höfum sérstaka varúð við geymslu, ljósritun, tölvuskráningu og eyðingu gagna til að
tryggja trúnað við viðskipavini og samstarfsaðila.
- Hagsmunaárekstur
Við vinnum öll okkar verk af heiðarleika og forðumst hagsmunatengsl. Við upplýsum
um þau tengsl sem kunna að vera við afgreiðslu mála og segjum okkur frá málum
eða afgreiðum mál á rökstuddan og gangsæjan hátt hafi slíkt verið samþykkt af framkvæmdastjóra.
Við tökum ekki við gjöfum (umfram smágjafir) eða annars konar greiðslu eða þjónustu,
- Stjórnarseta starfsmanna
Við tökum ekki að okkur stjórnarsetu í fyrirtækjum og stofnunum sem líklegt er að geti
leitt til hagsmunaárekstra við störf okkar hjá Þekkingarsetrinu. Við upplýsum framkvæmdastjóra og stjórn um stjórnarsetu í fyrirtækjum og stofnunum. Stjórn getur gert athugasemdir við stjórnarsetu starfsmanna.
- Félagsmál starfsmanna
Við látum gott af okkur leiða í samfélaginu með þátttöku í samfélagsmálum en gætum
þess jafnframt að þátttaka í stjórnmálastarfi eða öðru félagsmálastarfi hafi ekki óæskileg
áhrif á störf okkar hjá ÞSV eða orðspor hennar.
- Brot á siðareglum
Brot á siðareglum þessum getur valdið brottvikningu úr starfi að undangenginni áminningu.
Broti á reglum ber að vísa til umfjöllunar og úrskurðar hjá framkvæmdarráði Þekkingarsetursins.
- Birting og kynning
Siðareglur þessar eru birtar á vef Þekkingarsetursins. Starfsmönnum og stjórnarmönnum
skulu kynntar siðareglurnar þegar þeir koma til starfa.
Reglur hafa verið samþykktar af framkvæmdarráði og kynntar fyrir starfsmönnum.